28.2.2007 | 23:56
Febrúar liðinn
Mikið líður tíminn hratt - febrúar liðinn og örugglega komið sumar áður en maður veit af! Benna amma/langamma lést núna í febrúar og blessuð sé minning hennar. Annars er alllt fínt að frétta af okkur að vanda. Kolfinna Sjöfn fór að fá graut á kvöldin, tæplega 7 mánaða, þó svo hún væri ekkert að biðja um það. Júgrið er nefnilega að fara til Glasgow með saumaklúbbnum sínum 15.-18. mars og þá þarf skvísan víst að vera farin að samþykkja einhverja fæðu svo hún svelti ekki. Kofinna Sjöfn varð veik í fyrsta sinn nú í febrúar, hiti, hósti og kvef, en hún náði því sko úr sér - hreystikvendi í uppsiglingu, vonandi! Liverpool er búið að vera mjög sigursælt í febrúar og vann m.a. Barcelona 1-2 á útivelli, bara ef það skildi hafa farið fram hjá ykkur. Kolfinna Sjöfn virðist vera gríðarlega ánægð með gengi Liverpool síðastliðinn mánuð og mun að sjálfsögðu fylgjast áfram spennt með, ásamt föður sínum. Takk fyrir kveðjurnar í gestabókinni, alltaf gaman að sjá hverjir kíkja hérna inn. Knús og kossar, Margrét Harpa og co.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bloggvinir
Tenglar
Litlir félagar
- Jón Finnur Frændi minn
- Birgir Snær og Arnór Darri Grafarvogstöffarar
- Dagný Guðmunda Guggudóttir
- Halldór Örn Keflavíkurtöffari
- Þórey Frænka mín
- Hinrik Dagur Bríetarson
- Ásgeir Skarphéðinn Ingveldarson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir síðast sæta skvís! Alltaf svo fallegar myndirnar af þér. Hlakka til að sjá þig á morgun.
Kiss kiss þín frænka Benna Laufey
Benna Laufey 7.3.2007 kl. 21:55
Halló Gaman að lesa af því hvað það gengur vel hjá snúlludúllunni. Eins gott að hún verði farin að borða graut og drekka úr pela þegar mamman fer til SKotlands annars verður hún bara að komið með í sína fyrstu verslunarferð....myndi örugglega skemmta sér vel.
kv.Ingveldur
Ingveldur 8.3.2007 kl. 23:18
Hæ hæ,
verð nú að kvitta fyrir mig, kíki alltaf hér að öðru hvoru og hef voða gaman af að fylgjast með ykkur skvísunum. Verð að þvælast eitthvað á Hellu um páskana og það væri nú gaman að kíkja aðeins á ykkur.
Kveðja,
Gunna
Guðrún Unnarsdóttir 9.3.2007 kl. 18:37
Jæja... nú er kominn apríl og frænkunni langar til að sjá fleiri myndir af litlu dúllunni
Hafdís frænka 2.4.2007 kl. 10:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.