5.2.2007 | 15:43
Janúarmyndir
Sæl og blessuð öll sömul! Nú er skvísan okkar orðin rúmlega 6 mánaða og er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt - á gervihnattaöld Nýjustu mælingar á henni sýndu 5900 g og 65 cm og er það bara allt samkvæmt áætlun - allt svo skipulagt, eða þannig. Hún er farin að velta sér af baki yfir á maga og þykir ógurlega gaman að standa í fæturnar. Við erum búnar að fara í fjóra sundtíma og ég veit ekki hvor okkar skemmtir sér betur. Hún er voða dugleg að fara í kaf og líður greinilega mjög vel í vatninu. Annars er lítið að frétta - við mæðgur erum að flytja tímabundið heim að Egilsstöðum því ,,gamla" settið er að fara á Kanarí og ætlum við að vera ráðskonur heima á meðan, það verður örugglega bara notalegt. Endilega verið áfram dugleg að kvitta í gestabókina. Kveðja, Margrét Harpa, Ómar og Kolfinna Sjöfn
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bloggvinir
Tenglar
Litlir félagar
- Jón Finnur Frændi minn
- Birgir Snær og Arnór Darri Grafarvogstöffarar
- Dagný Guðmunda Guggudóttir
- Halldór Örn Keflavíkurtöffari
- Þórey Frænka mín
- Hinrik Dagur Bríetarson
- Ásgeir Skarphéðinn Ingveldarson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ hæ! Vorum að skoða nýjustu myndirnar, þú ert nottla bara sætust!
Knús frá okkur til ykkar
Jón Finnur og Benna Laufey
Benna Laufey 5.2.2007 kl. 17:10
Hæ rosa flottar myndir af þér skvísa , allt of langt síðan maður hefur fengið að knúsa þig , svo langt á milli okkar enþá veikindi svo maður þori ekki að koma en það vonandi styttist í það , knús til ykkar
Hjarðarbrekkugengið
Dagrún 6.2.2007 kl. 00:39
Enn gaman að vera í sundinu Við erum ekki farin að fara með Viktoríu Valný ennþá Í SUND, hún er alltaf með í eyrunum, enn kannski getum við farið í sund bara öll fjölskyldna saman
Enn gangi ykkur vel og Kolfinna Sjöfn þú ert æðisleg, svo sæt og fín.
Kveðja Fjölskyldan á sunnuvegi 6
Halla Rós, 10.2.2007 kl. 23:01
Hæ hvernig er þetta á ekki að fara að skella inn nokkrum myndum knús Dagrún
Dagrún 22.2.2007 kl. 12:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.